
Vörumerki
Búnaðurinn á bak við kerfin
Við veljum búnað eftir verkefninu. Victron og eigin LiFePO4 rafgeymar eru kjarninn í kerfunum okkar – hér er yfirlit yfir framleiðendurna sem við seljum og í hverju hver og einn er sterkastur.

Victron Energy
Áriðlar, hleðslutæki og stýribúnaður – hjartað í sjálfstæðum raforkukerfum.
Victron Energy framleiðir aflrafeindabúnað sem breytir, hleður, geymir og vaktar orku – allt frá litlum kerfum í húsbílum og bátum upp í varaafl, fjarskipti og örnet. Búnaðurinn talar saman í gegnum GX-stýrieiningar og VRM-vöktun, svo hægt er að fylgjast með kerfinu hvar sem er. Victron er hryggjarstykkið í kerfunum okkar: MultiPlus-II áriðlar, MPPT sólarsellustýringar og Cerbo GX ásamt Bláorku LiFePO4 rafgeymum.
Vöruflokkar
- Hleðsluáriðlar (t.d. MultiPlus-II)
- MPPT sólarsellustýringar
- DC-DC breytar og hleðslutæki
- Rafgeymamælar og rafgeymar
- GX-stýrieiningar og VRM-fjarvöktun
Hentar fyrir
- Sumarhús & ótengd kerfi
- Húsbílar & bátar
- Varaafl
- Fjarskipti & iðnaður

Sigenergy
Sólaráriðill, rafhlöður og rafbílahleðsla sem vinna saman í einu snjallkerfi.
Sigenergy sérhæfir sig í snjöllum sólar- og orkugeymslulausnum þar sem áriðill, rafhlöður, rafbílahleðslutæki og stjórnbúnaður mynda eina heild. Áherslan er á snjalla orkustjórnun sem nýtir sólarorkuna sem best yfir sólarhringinn. Lausnirnar ná frá heimilum upp í atvinnuhúsnæði og stærri sólarorkuver – fyrir heimili sem vilja geyma eigin sólarorku og hlaða rafbílinn heima.
Vöruflokkar
- Orkugeymslukerfi (rafhlöður)
- Snjallir sólaráriðlar
- Hleðslutæki fyrir rafbíla
- Snjallgátt og stýring
Hentar fyrir
- Heimili með sólarsellum
- Rafbílahleðsla
- Atvinnuhúsnæði & iðnaður

Deye
Hybrid-áriðlar og orkugeymslur fyrir sólarorkukerfi – einfasa og þriggja fasa.
Deye framleiðir áriðla og orkugeymslukerfi fyrir sólarorku. Þekktastir eru hybrid-áriðlarnir, sem stýra sólarsellum, rafgeymum og tengingu við netið í einu tæki, en línan nær líka yfir áriðla fyrir ótengd kerfi, strengáriðla og smááriðla. Búnaðurinn fæst bæði einfasa og þriggja fasa og spannar allt frá heimilum upp í atvinnuhúsnæði.
Vöruflokkar
- Hybrid-áriðlar
- Áriðlar fyrir ótengd kerfi
- Streng- og smááriðlar
- Orkugeymslukerfi fyrir heimili og fyrirtæki
- Hleðslustöðvar fyrir rafbíla
Hentar fyrir
- Heimili & sumarhús
- Ótengd kerfi
- Atvinnuhúsnæði

EcoFlow
Ferðarafstöðvar og heimilisrafhlöður – tilbúin orka án uppsetningar.
EcoFlow sérhæfir sig í færanlegum rafstöðvum og orkugeymslu fyrir heimili: rafhlöðum með innbyggðum áriðli og innstungum sem má hlaða úr innstungu eða með sólarsellum. Línan nær frá meðfærilegum DELTA-stöðvum upp í heimilisrafhlöður og sólarkerfi. Hentar vel þar sem fólk vill einfalda lausn sem virkar strax – í útileguna, húsbílinn, sumarhúsið eða sem varaafl þegar rafmagnið fer.
Vöruflokkar
- Ferðarafstöðvar (DELTA)
- Heimilisrafhlöður og varaafl
- Sólarkerfi og sólarsellur
- Snjallbúnaður og aukahlutir
Hentar fyrir
- Útilegur & ferðalög
- Húsbílar
- Varaafl heima
- Sumarhús

Tradekar
Ferða- og frístundavörur – m.a. Pro-User áriðlar, hleðslutæki og sólarsellur.
Tradekar er hollenskt fyrirtæki sem hefur í meira en 40 ár þróað og selt vörur fyrir frístundir og ferðalög undir eigin vörumerkjum, svo sem Spinder og Pro-User. Undir Pro-User Electronics eru áriðlar, lithium rafgeymar, AC/DC og DC/DC hleðslutæki, sólarsellur og hleðslustýringar, auk kælikassa og loftdæla. Þetta er búnaður sem passar beint í húsbílinn, hjólhýsið og útileguna.
Vöruflokkar
- Áriðlar (hreinn sínus)
- Lithium rafgeymar og hleðslutæki
- Sólarsellur og hleðslustýringar
- Kælikassar og loftdælur
- Hjólafestingar
Hentar fyrir
- Húsbílar & hjólhýsi
- Útilegur & ferðalög
- Smærri kerfi í bíla

Fronius
Evrópskir sólaráriðlar sem breyta sólarorkunni í rafmagn fyrir heimili og fyrirtæki.
Fronius er evrópskur framleiðandi frá Wels í Austurríki sem sérhæfir sig í sólaráriðlum og heildarlausnum fyrir sólarorku. GEN24 Plus hybrid-áriðillinn er ætlaður heimilum og vinnur með Reserva rafhlöðunum, Verto Plus hentar smærri fyrirtækjum, landbúnaði og fjölbýlishúsum og Tauro stærri atvinnukerfum. Í GEN24 er neyðarafl (PV Point) fyrir valin tæki, og með rafhlöðu og varaaflsrofa getur kerfið haldið öllu heimilinu gangandi þegar rafmagnið fer af netinu.
Vöruflokkar
- Hybrid-áriðlar (GEN24 Plus)
- Sólaráriðlar fyrir fyrirtæki (Verto Plus, Tauro)
- Rafhlöður (Reserva)
- Varaafl og neyðarafl
- Orkustýring, rafbílahleðsla og hitun með sólarorku
Hentar fyrir
- Heimili með sólarsellum
- Varaafl
- Landbúnaður & fyrirtæki
- Stærri sólarorkukerfi

Ripca
Kaplar, tengi, öryggi og rafbúnaður fyrir ökutæki og báta.
Ripca er hollenskur sérfræðingur í rafbúnaði fyrir ökutæki og hefur starfað frá 1902. Fyrirtækið selur íhlutina sem tengja kerfin saman – kapla, kapalskó, öryggi, rofa, liða og dreifibúnað – auk DC-DC og DC-AC breyta og búnaðar fyrir rafgeymastjórnun. Vörurnar eru ætlaðar vörubílum, atvinnubílum og bátum og eiga því vel heima í traustum raflögnum í húsbílum og bátum.
Vöruflokkar
- Kaplar og kapalskór
- Öryggi og öryggjahöldur
- Tengi, rofar og liðar
- Straumdreifing
- Breytar og rafgeymastjórnun
Hentar fyrir
- Bátar
- Húsbílar & atvinnubílar
- Raflagnir í kerfum
Hvaða búnaður hentar þínu kerfi?
Segðu okkur frá staðnum og notkuninni – við hjálpum þér að velja saman búnað sem passar, hvort sem það er heilt kerfi eða einn íhlutur.
